Heilbrigður lífsstíll
Mataræði, svefn og hreyfing eru þrír stærstu þættirnir sem stuðla að heilbrigðum lífsstíl. Þættirnir eru auðvitað margfalt fleiri en þessir eru þeir mikilvægustu. Heilbrigður lífsstíll er einfaldlega það að halda þessum þremur atriðum í góðu lagi og láta sér líða vel í eigin skinni. Mikilvægt er að hafa reglu á lífinu, vakna á svipuðum tíma alla daga og ekki fara of seint að sofa, borða heilsusamlega, hreyfa sig daglega og á sama tíma, að hugsa vel um sjálfan sig.
NæringÞað skiptir máli að borða heilsusamlega og fá alla þá næringu sem líkaminn þarfnast. Mikilvægt er að borða ekki of mikið, en heldur ekki of lítið, allt er gott í hófi. Það sem skiptir miklu máli í þessu er að borða þannig að þér líði vel og ekki láta líða of langan tíma á milli máltíða.
HreyfingMiklu máli skiptir að hreyfa sig nægjanlega mikið. Hreyfing er mikilvæg til að auka úthald, styrk og andlega líðan. Maður þarf að hreyfa sig til að brenna matnum sem maður borðar og til að sofna. Hreyfing er eitt það sem skiptir mestu máli í heilbrigðum lífsstíl. Þú getur verið að borða rétt og sofa nóg en ef þú hreyfir þig ekkert líður þér ekki vel. Slen og doði færist yfir og fólk verður latara, þreyttara og önnur vanlíðan fylgir í kjölfarið.
|
SvefnSvefn er einnig mikilvægur partur af heilbrigðum lífsstíl. Mælt er með fyrir fullorðna manneskju að sofa um 7-9 tíma á nóttunni. Börn og unglingar eiga að fá að sofa aðeins lengur, eða um 8-10 tíma. Ef maður sefur ekki vel er erfitt að halda út allan daginn glaður og ánægður og því er mjög mikilvægt að sofa vel. Svefn er ótrúlega mikilvægur fyrir þig svo þér líði vel og einnig svo að þú getir gert allt vel sem þú tekur þér fyrir hendur.
Hér er smá próf sem reiknar út hvernig heilsa þín er.
|
Allir þessir þættir skipta miklu máli fyrir heilbrigðan lífstíl og vinna þeir allir saman. Ef einn þáttur er alls ekki fyrir hendi er erfiðara að lifa heilbrigðu lífi. Því er mikilvægt til þess að bæta líðan sína að lifa í samræmi við heilbrigðari lífstíl. Þá er nauðsynlegt að hugsa um allt það sem gerir gott fyrir mann. Að lifa heilbrigðum lífsstíl minnkar einnig líkurnar á að maður fái ýmsa sjúkdóma.