Ketógen mataræðið |
Skyndibita mataræði |
Ketógen mataræðið er mataræði sem lætur líkamann brenna sem mest af ósæskilegri fitu með því að skipa líkamanum að nýta fitu fyrir orku í stað kolvetna. Orka líkamans verður til þegar súrefni og glúkósi sameinast. Glúkósinn myndast yfirleitt úr kolvetnum. Ketósis er venjulegt efnaskiptiferli sem byggist á því þegar líkaminn framleiðir ekki nóg af glúkósa til að mynda orku og fer að brenna geymda fitu. Þetta veldur uppsöfnun sýru í líkamanum. Þessar sýrur kallast ketón.
Ketógen mataræðið er talið vera gott fyrir fólk sem vill léttast. Til að fylgja því þarf að borða sem mest af fitu með um 75 prósent af hitaeiningunum er úr fitu. Á meðan 20 prósent hitaeininga eru úr próteini og 5 prósent eru úr kolvetni. Hins vegar þarf að fara varlega því ketón í of miklu magni getur eitrað fyrir líkamanum. Að auki er ketógen mataræðið ekkert sérlega hollt vegna þess að það getur valdið sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum, röngum efnaskiptum heilkennum og fleira. Hráfæði |
Þegar maður er á skyndibitamataræði má maður aðeins borða skyndibita, eins og nafnið gefur til kynna en mikilvægt er að halda ákveðnum fjölda kaloríueininga. Margir nota skyndibitamataræðið sem megrunarkúr en það er ekki mjög heilbrigð leið til þess að léttast. Skyndibiti er matur sem er þekktur fyrir að innihalda margar hitaeiningar og kaloríur en þá mega þeir sem eru á kúrnum aðeins borða þrjár máltíðir á dag og tvær hressingar á dag. Hugmyndin bak við þetta mataræði er það að viðkomandi getur farið á kúr án þess að þurfa að hætta að borða mat sem honum finnst góður. Í staðinn getur hann farið á skyndibitastaði aðeins með því skilyrði að panta hollasta réttinn á matseðlinum. Þetta mataræði hentar aftur á móti alls ekki aðilum sem borða ekki glúten, fitu og salt eða þá sem eru vegan. Ekki er mælt með þessari leið til þess að grennast því þetta getur haft slæm áhrif á heilsuna. Skyndibitamataræði er gott dæmi um lélegt og óheilbrigt mataræði.
|