Hvað er að fylgja ákveðnu mataræði?
Mataræði og reglur um matarvenjur er þegar fólk ákveður að sleppa ákveðnum mat líkt og, sykri, glúteni, kjöti og mörgu fleiru eða bæta við ákveðnum mat, til þess að annaðhvort léttast, til að lifa heilbrigðara lífi eða vegna einhverra læknisfræðilegra ástæðna. Í dag eru til margar mjög fjölbreyttar gerðir af mataræði, svo sem hráfæðis mataræði, ketósis, skyndibita mataræði og fleira. Þegar valið er ákveðið mataræði þarf að hafa í huga hvaða matur fer vel í þig og hvaða matur fer illa í þig, og t.d. í hvaða blóðflokki þú ert. Mikilvægt er að velja mataræði sem hentar þér og best er að byrja varlega, ekki fara strax út í neinar öfgar vegna þess að það getur leitt til óæskilegs þyngdartaps eða vanlíðunar. Mataræði getur haft mjög mikil áhrif á heilbrigðan lífstíl, bæði gert lífsstílinn heilbrigðari en einnig óheilbrigðari. Því miður er sumt mataræði ekki endilega gott fyrir fyrir heilsuna. Mataræði eftir reglum snýst oft um það að auðvelda fólki að grennast og getur það verið slæmt í sumum tilvikum. Það er nefnilega mikilvægt að borða mat úr öllum fæðuflokkum til þess að fá öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast. Sumt er samt hægt að hafa í hófi og minnka mat úr ákveðnum flokkum. Við teljum að betra sé að borða mikið af næringaríkum mat heldur en að borða næringarsnauðan mat vegna þess að þegar maður borðar næringarsnauðan mat verður maður aldrei alveg saddur og manni fer að langa meir í sætindi og fleira.