Matreiðslumyndbönd
Hér eru tvö matreiðslumyndbönd þar sem við sýnum hvernig við matreiðum annarsvegar hummus og hins vegar kínóa góðgæti.
Hummus |
Kínóa og haframjöls góðgæti |
|
|
uppskrift:
1 dós/krukka soðnar kjúklingabaunir 2 hvítlauksrif, pressuð 2 matskeiðar tahini 2 matskeiðar sítrónu safi 1 teskeið cumin Cayenne pipar af hnífsoddi ½ teskeið salt ½ teskeið pipar 2-3 matskeiðar ólífuolía 2-3 matskeiðar vatn Aðferð: Skolið kjúklingabaunirnar og skellið síðan öllu saman í matvinnsluvél. Það má bæta örlítilli ólífuolíu eða vatni við ef hummusinn er of þykkur. Færið yfir í skál og borðið með hverju sem ykkur dettur í hug. Okkur finnst gott að borða hummus með gulrótum eða hrökkbrauði. |
Uppskrift:
80g dökkt súkkulaði ½ dl kókospálmasykur 2 matskeiðar agave síróp 150ml kókosolía 1 dl hnetusmjör 4 dl poppað kínóa 3 dl haframjöl Aðferð: Bræðið saman við lágan hita súkkulaði, kókospálmasykur og síróp. Passa þarf að hræra stanslaust í sykrinum því annars getur hann brunnið. Þegar sykurinn er bráðinn er kókosolían sett út í. Hitið þar til suðan kemur upp. Takið pottinn af hellunni um leið og suðan kemur upp og hrærið hnetusmjörinu út í. Látið blönduna kólna í 5-10 mín svo að hún þykkni aðeins. Eftir þetta má setja poppaða kínóað og haframjölið út í hræra öllu vel saman. Setjið í eldfast mót, gott að hafa smjörpappír undir, og setjið í frysti í um 40-60 mínútur. Svo má skera nammið í bita. |