Miðjarðarhafsmataræðið - eitt heilbrigðasta mataræðið
Miðjarðarhafsmataræðið er talið er vera eitt það heilbrigðasta sem til er. Að borða að sið íbúa við Miðjarðarhaf er alls ekki sérstakur kúr heldur má frekar segja að það sé eins og lífsstíll. Hugmynd mataræðisins er að fólk prófi að borða eins og þeir sem koma frá löndunum við Miðjarðarhafið.
Mataræðið byggist aðallega á hráefnum úr jurtaríkinu. Grænmeti og ávextir er mjög mikilvæg uppistaða í mataræðinu. Mælt er með því að borða um 7 til 10 sinnum ávexti og grænmeti á dag og svo er dagleg neysla á heilkornaafurðum, brauði, pasta, og ólífuolíu mikilvæg. Með brauðinu er ekki mikið um álegg en brauðinu er oft dýft í ólífuolíu. Baunir, hnetur, fræ, jurtir og krydd eru að auki stór hluti af mataræðinu. Sjávarfang og fiskur er mikið borðað, jógúrt og ostur einnig og svo er lögð áhersla á hóflega eggjaneyslu. Kjötið sem fólk við Miðjarðarhaf borðar aðallega er kjúklingur en rautt kjöt er borðað í mjög litlu magni og mikilvægt er að kjötið sé alltaf magurt. Sætindi eru einnig borðuð í hófi. Það sem fólk á Miðjarðarhafsmataræðinu drekkur er til dæmis hreint vatn og af og til má fá sér eitt rauðvínsglas. Það drekkur ekki ávaxtadjús og aðra sykraða drykki. Til er píramídi sem sýnir uppbyggingu mataræðisins og sýnir hann hvernig mataræðinu er skipt upp. Þessi píramídi hjálpar fólki sem ætlar að fylgja mataræðinu að sjá hvernig skal borða.
Gerð hefur verið rannsókn til að kanna heilsusamlegan ávinning á því að fylgja Miðjarðarhafsmataræðinu. Þessi rannsókn kallst PREDIMED - rannsóknin og er hún spænsk rannsókn. Hún var gerð á um 7500 körlum og konum og fylgdi fólkið mismunandi mataræði, lágfitumataræði, Miðjarðarhafsmataræði með annað hvort mikið af hnetum eða ólífuolíu. Þátttakendur könnunarinnar voru á aldursbilinu 55-80 ára og voru allir taldir vera í áhættuhópi fyrir hjarta- og æðasjúkdóma. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að hún sýndi okkur mikilvægi heilbrigðs mataræðis. Heilbrigt mataræði getur fyrirbyggt hjartasjúkdóma og heilablóðföll. Miðjarðarhafsmataræðið var það mataræði sem minnkaði hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum, eða um 30%. Ólífuolíu útgáfan af Miðjarðarhafsmataræðinu minnkaði einnig hættuna á sykursýki um heil 40%.
|
Að fylgja Miðjarðarhafsmataræðinu í ákveðinn tíma getur minnkað líkurnar á ótalmörgum sjúkdómum, svo sem hjarta- og æðasjúkdómum og krabbameini. Tíðni hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins hefur verið mjög lág í löndunum í Miðjarðarhafinu og svo er meðalaldur fólks sem býr í þessum löndum töluvert hærri en til dæmis hér á Vesturlöndunum. Miðjarðarhafsmataræðið dregur einnig úr líkunum á að fá sykursýki og á að fá Alzheimer og Parkinson sjúkdóma. Þetta mataræði er mjög hollt og ef á heildina er litið hefur það mjög jákvæð áhrif á allt sem tengist líkamanum.