NiðurstaðaVið komumst að ýmsum niðurstöðum við að vinna þetta verkefni. Við vitum nú að það skiptir greinilega máli hvað fer upp í munn og ofan í maga því það hefur áhrif á líkamann og líðan. Þetta hefur verið sannað á til dæmis aðventistunum og Okinawa fólkinu. Þau lifa lengur heldur en venjulegur maður og eru í minni hættu að fá allskyns sjúkdóma. Þetta er að mestu leiti mataræði þeirra að þakka. Það er samt athugunarvert þegar mataræði þeirra eru borin saman, þá tökum við til dæmis eftir því að á meðan aðventistarnir borða ekkert kjöt borða íbúar Okinawa svínakjöt í hæfilegu magni. Mataræði þeirra er töluvert ólíkt.
Við komumst einnig að því að skilgreiningin á heilbrigðum lífstíl er að mestu leyti sú að vera hamingjusamur, líða vel í eigin skinni og að borða þannig að manni líði vel. Svo lengi sem manni líður vel af því sem maður borðar og er hamingjusamur er engin ástæða til að borða eftir einhverju ákveðnu mataræði, ekki nema maður vilji það. Svo eru til margir kúrar sem eru ekki góðir fyrir mann, svo mikilvægt er að velja þann rétta. Miklu máli skiptir að fá öll þau næringaefni og vítamín sem líkaminn þarfnast. Einnig er mikilvægt vera meðvitaður um það sem fer vel í mann og hvað ekki. Erfitt er meðal annars fyrir manneskju í blóðflokki O að verða vegan (manneskja sem borðar ekkert kjöt né dýraafurðir) þar sem talið er að kjöt og prótínrík fæða sé mikilvæg fæða fyrir manneskju í blóðflokki O á meðan að baunir eru sagðar fara illa í þá. Baunir eru nefnilega mikilvæg fæða fyrir grænmeitisætur vegna þess að þær innihalda mikið af prótíni. Það skiptir miklu máli að borða fjölbreytt. Við komumst að því að Miðjarðarhafsmataræðið er eitt heilbrigðasta matræðið. Það er vegna þess að í Miðjarðarhafsmataræðinu er borðað úr öllum fæðuflokkum, en samt er ákveðinn matur borðaður í hófi. Segja má að mataræðið sé mjög fjölbreytt og mjög áhugavert var að sjá hve Miðjarðarhafsmataræðið er heilbrigt þrátt fyrir að engum mat sé sleppt, en oft er einhverjum mat sleppt þegar öðru mataræði en Miðjarðarhafsmataræðinu er fylgt. Næring er einn af þremur stærstu þáttunum í heilbrigðum lífsstíl og þannig skipar mataræði stóran þátt í heibrigðum lífsstíl. Til þess að líða vel þarf að borða rétt og stundum er þörf á því að fara eftir einhverju ákveðnu mataræði til þess að maður borði rétt og líði vel. Svarið við rannsóknarspurningunni okkar ,,hvaða þátt á mataræði í heilbrigðum lífstíl?" er eftirfarandi: mataræði gegnir afar mikilvægu hlutverki í heilbrigðum lífsstíl og mjög mikilvægt er að borða hollt og rétt því það sem við borðum og hversu mikið getur haft mikil áhrif á svefninn okkar, andlega líðan og hvort og hvernig hver og einn hreyfir sig. Til þess að líða vel og lifa heilsusamlegu lífi þarf að huga að því hvað maður er að borða, þó alls ekki sé alltaf nauðsynlegt að sleppa ákveðnum fæðutegundum (eins og sætindum), heldur felst lausnin miklu heldur í að halda óhollustunni í hófi. |